31.7.2010 | 16:02
Smá leti.
Jæja, ég er komin aftur. Ég er búin að vera voðalega léleg að skrifa á þessa síðu en ég hef líka haft í nógu öðru að snúast. Fyrst og fremst skal nefna að ég var að opna tískuverslun með 8 öðrum hönnuðum. Verslunin heitir Kiosk og er staðsett við Laugaveg 33, annari hæð. Verslunin er með blogg og Facebook síðu.
Opnunartími er frá 10-18 mánudaga til laugardaga.
Þar að auki hef ég verið að vinna að nýrri línu fyrir Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, en hún er væntanleg í haust.
Nú er aðeins farið að róast í stúdíóinu og ég get tekið að mér ný verkefni. Ég er alltaf að vinna smá fyrir sjálfa mig, vini og vandamenn og ber helst að nefna nú brúðarkjól á hana Siggu Dögg sem er að fara að gifta sig í október. Við erum búnar að vera í marga mánuði að ákveða hvernig sá merkilega kjóll skal vera og nú erum við loksins tilbúnar að fara að gera snið.
Hér eru nokkrar myndir frá Kiosk. Bless í bili.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2010 | 15:58
apríl
Nú hef ég aftur pláss og tíma fyrir ný verkefni. Er búin að vera upptekin við ýmislegt skemmtilegt eins og að sauma fyrir stelpur sem eru að gera lokaverkefni við Listaháskólann og koma á blað hugmyndum að brúðarkjól fyrir góða vinkonu.
Sendið mail með fyrirspurnum.
Arna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2010 | 17:19
Febrúar
Sæl veriði.
Ég hef pláss fyrir minni háttar verkefni í febrúar. Viðgerðir og þess háttar.
Arna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010 | 21:33
Febrúar
Fyrsta vikan í febrúar er orðin fullbókuð, en restin af febrúar er laus.
Arna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2010 | 14:45
Nýtt ár
Gleðilegt ár!
Það er búið að vera nóg að gera í desember en nú er aðeins að róast og ég get tekið að mér ný verkefni. Það er alltaf pláss fyrir smávægilegar breytingar og viðgerðir.
Bless í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2009 | 12:09
Jólatörn
Ég er að klára að skipuleggja vinnuna fram að jólum og hef ennþá pláss fyrir nokkur verkefni. Endilega sendið mér mail ef þið viljið komast að fyrir jól.
Arna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2009 | 16:40
Ný vinnustofa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2009 | 14:03
Meira saum.
Sæl veriði.
Ég er enn að sauma og get tekið að mér fleiri verkefni. Mæli með því að senda mér fyrirspurnir í tölvupósti á arnasigrun@gmail.com eða bara hringja í mig.
Já, Gunnar Guðjónsson, ég get prjónað lopapeysu. Sendu mér línu.
A
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2009 | 23:33
Komin heim
Ég er komin heim úr starfsnáminu og er byrjuð að taka að mér ný verkefni. Endilega látið það berast.
Arna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.6.2009 | 17:06
London
Jæja, ég er að fara til London og saumastofan verður því lokuð þar til í byrjun október.
Takk fyrir frábærar móttökur.
Arna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




